Henry ætlaði að fá að spila síðustu fimm með Arsenal - FIFA sagði nei Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2011 13:00 Thierry Henry þakkar stuðningsmönnum Arsenal fyrir móttökurnar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Thierry Henry fékk ekki leyfi til þess að spila með sínu gamla félagi á Emirates-bikarnum í gær. Henry, sem var kominn á Emirates-völlinn með bandaríska liðinu New York Red Bulls, hafði fengið leyfi frá Arsene Wenger, stjóra Arsenal, um að skipta um búning í lokin og spila síðustu fimm mínútur leiksins með Arsenal-liðinu. Franski framherjinn fékk hinsvegar ekki leyfi frá FIFA þar sem reglurnar segja að leikmaður megi ekki spila með báðum félögum í sama leiknum og skiptir þar engu máli þótt aðeins sé um vináttuleik að ræða. Thierry Henry fékk hinsvegar góðar mótttökur frá 60 þúsund stuðningsmönnum Arsenal sem mættu á leikinn og lyfti síðan Emirates-bikarnum í lokin eftir að New York Red Bulls vann mótið með því að ná 1-1 jafntefli við Arsenal. „Ég ætlaði að fá að spila með Arsenal og ég er viss um að stuðningsmennirnir hefðu viljað sjá það. Við fengum að vita það í hálfleik að það væri ekki leyfilegt, asnalegar reglur," sagði Thierry Henry við The Sun. Hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu Arsenal og vann tvo meistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla með félaginu.
Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Sjá meira