David Moyes: Arteta er okkar Iniesta Stefán Árni Pálsson skrifar 28. febrúar 2011 16:45 Arteta átti fínan leik um helgina / Mynd: Getty Images
Enska úrvaldeildarliðið Everton virðist vera hægt og bítandi að komast á skrið. Liðið hóf tímabilið illa og margir lykilleikmenn liðsins áttu erfitt með að fóta sig. Everton vann mikilvægan sigur gegn Sunderland ,2-0, um helgina og þar sást til nokkurra kunnuglegra andlita. Mikel Arteta, leikmaður Everton, hefur átt erfitt uppdráttar í vetur og fengið töluverða gagnrýni á sig. Arteta sýndi sitt rétta andlit um helgina og stýrði sóknarleik þeirra bláklæddu með miklum sóma auk þess sem hann lagði upp mark fyrir framherjann Jermaine Beckford. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, var virkilega ánægður með frammistöðu leikmannsins og hrósar honum hásterkt í enskum fjölmiðlum „Hann var frábær um helgina gegn Sunderland og stýrði umferðinni í sóknarleik okkar allan leikinn,“ sagði Moyes. „Arteta er leikmaður í sama gæðaflokki og Andreas Iniesta hjá Barcelona. Hann heldur boltanum innan liðsins og gegnir því sama hlutverki , en þeim finnst báðum gott að vera með boltann og dreifa spilinu einstaklega vel.“ „Leikmenn líkt og Arteta telja sig oft á tíðum bera mikla ábyrgð á frammistöðu liðsins og það hefur komið honum um koll það sem af er tímabilsins, en hann er orðin rólegri og það sést á spilamennsku hans,“ sagði Moyes.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira