Blackpool vann óvæntan 3-1 sigur á Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 21:59 William Gallas og félagar töpuðu dýrmætum stigum í kvöld. Mynd/AFP
Tottenham óð í færum á Bloomfield Road í kvöld en það voru heimamenn í Blackpool sem skoruðu mörkin og unnu óvæntan 3-1 stórsigur. Tottenham var búið að vinna þrjá deildarleiki í röð og hafði ekki tapað nema einum af síðustu fimmtán leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Tapið getur orðið dýrkeypt fyrir Tottenham í baráttu liðsins um sæti í Meistaradeildinni á næsta ári en Chelsea getur nú komist upp fyrir þá í fjórða sætið með sigri í leik sem Chelsea-liðið á inni. Blackpool komst í 1-0 eftir 18 mínútna leik þegar Sebastien Bassong felldi DJ Campbell klaufalega og Charlie Adam skoraði úr vítaspyrnunni. DJ Campbell var síðan sjálfur á ferðinni á lokamínútu fyrri hálfleiksins þegar hann skoraði af stuttu færi eftir laglega skyndisókn og sendingu James Beattie. Nýi maðurinn Sergei Kornilenko átti mikinn þátt í undirbúningi marksins þegar hann átti laglega hælsendingu á Beattie. Brett Ormerod skoraði síðan þriðja mark Blackpool á 80. mínútu og innsiglaði sigurinn sem var sá fyrsti hjá liðinu síðan að liðið vann Liverpool 12. janúar. Rússinn Roman Pavlyuchenko náði loksins að minnka muninn fyrir Tottenham í uppbótartíma en nær komust þeir ekki.
Mest lesið KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Körfubolti Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Handbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Fótbolti Leik lokið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Golf Fleiri fréttir Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Sjá meira