Joey Barton telur að hann sé besti enski miðjumaðurinn Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 7. apríl 2011 11:30 Joey Barton leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle er vanur því að vekja athygli á sjálfum sé með undarlegum uppákomum og framkomu. Hann heldur sínu striki í viðtali sem birt var í frönsku fótboltatímariti, So Foot. Nordic Photos/Getty Images
Joey Barton leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle er vanur því að vekja athygli á sjálfum sé með undarlegum uppákomum og framkomu. Hann heldur sínu striki í viðtali sem birt var í frönsku fótboltatímariti, So Foot. Þar gagnrýnir Barton m.a. Fabio Capello þjálfara enska landsliðsins fyrir að velja Gareth Barry í landsliðið – og Barton telur að Capello getið valið mun betri miðjumenn í liðið og þar sé hann sjálfur fremstur á meðal jafningja. Barton segir m.a. í viðtalinu að Barry sé „kennarasleikja" og hann gagnrýnir einnig Frank Lampard leikmann Chelsea í þessu viðtali þar sem Barton lýsir því yfir að England muni ekki standa uppi sem heimsmeistarar í fótbolta í næstu 50 keppnum. „Ég er besti miðjumaðurinn á Englandi," segir Barton í viðtalinu og hann er sannfærður um að hann sé besti valkosturinn fyrir Capello. Barton hefur leikið einn landsleik á ferlinum þar sem hann kom inná sem varamaður gegn Spánverjum árið 2007. „Luka Modric og Samir Nasri eru góðir leikmenn en ef litið er yfir ensku leikmennina er Jack Wilshere góður en Frank Lampard er á niðurleið og Steven Gerrard er mikið meiddur," segir Barton m.a. í viðtalinu og sparar ekki stóru orðin þegar hann gagnrýnir Barry sem hefur leikið 46 landsleiki. „Ég missi ekki svefn þegar ég á að mæta Barry. Hann er með góðan umboðsmann og hann er alltaf á fremsta bekk, og er sammála landsliðsþjálfaranum. Sáuð þið fjórða markið sem Þjóðverjar skoruðu gegn Englandi á HM? Barry var eins og skjaldbaka að elta héra þegar Mesut Ozil skoraði markið," segir hinn litríki Joey Barton.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira