FIFA-reglur gætu frelsað Tevez frá City Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2011 10:00 Nordic Photos / Getty Images
Svo gæti farið að Carlos Tevez geti losnað undan samningi sínum frá Manchester City næsta sumar vegna reglugerðar FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Samkvæmt reglunum er atvinnumönnum í knattspyrnu heimilt að rifta samningi sínum við félög sín ef þeir taka þátt í minna en tíu prósentum af leikjum síns liðs. Tevez hefur hingað til tekið þátt í fimm leikjum og eins og er öruggt að City spilar minnst 48 leiki á tímabilinu. Ef liðið kemst upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar og eitthvað áfram í bikarkeppnunum á Englandi, eins og miklar líkur eru á, mun fjöldi leikja fara yfir 50. Ef Tevez spilar ekkert meira með City á leiktíðinni, eins og Roberto Mancini hefur lýst yfir, ætti hann samkvæmt reglunum möguleika á að losa sig undan samningnum við City. Það er vitanlega mikið í húfi fyrir City því þrátt fyrir allt er Tevez verðmæt eign sem félagið ætti að geta selt fyrir háar fjárhæðir. Samkvæmt breska blaðinu The Guardian vita forráðamenn City af reglunni en þeir eru vongóðir um að Tevez geti ekki nýtt sér hana. Reglan er svo að knattspyrnumenn fái réttláta meðferð hjá sínum félögum en Tevez var á dögunum sektaður um tveggja vikna laun fyrir að neita að koma inn á sem varamaður í leik gegn Bayern München. Það gæti unnið gegn Tevez enda telja forráðamenn City að reglan sé ekki fyrir leikmenn sem eru í ónáð vegna agabrota. En komi í ljós að Tevez gæti nýtt regluna sér í hag er mögulegt að forráðamenn City neyðist til að velja hann í leikmannahópinn án þess þó að láta hann spila, því það telur einnig að vera á meðal varamanna í leikjum.
Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjá meira