Erlent

Daglega gerðar 600 þúsund tilraunir til tölvubrota

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fólk þarf að huga að því hvaða lykilorð það velur sér.
Fólk þarf að huga að því hvaða lykilorð það velur sér. mynd/ afp.
Á hverjum degi eru gerðar um 600 þúsund tilraunir til þess að brjótast inn á læstar Fésbókarsíður, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. Með innbrotunum vilja tölvuþrjótar ná aðgangi að skilaboðum, myndum og persónulegum upplýsingum sem almenningur hefur sett á síðurnar sínar. Sérfræðingar í öryggismálum segja að þessar tölur séu allt of háar og að fólk verði að huga betur að því hvaða lykilorð það velur sér og á hvaða hlekki það smellir á fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×