Erlent

Átök í Túnis eftir úrslit þingkosninganna

Mikil átök brutust út í miðhluta Túnis eftir að úrslit fyrstu lýðræðislegu kosninganna voru gerð opinber í gærdag.

Lögreglan þurfti að beita táragasi gegn hundruðum mótmælenda í bænum Sidi Bouzid. Bærinn er vagga uppreisnarinnar í Túnis en bæjarbúar eru æfir af reiði vegna þess að kjör nokkurra þingmanna Popular List flokksins voru úrskurðuð ógild. Fjármálamisferli var gefið upp sem ástæðan sem gefin var fyrir þessu úrskurðum.

Höfuðstöðvar Ennahda flokksins í Sidi Bouzid voru grýttar og kveikt í bílum fyrir utan þær. Ennahda var sigurvegari kosninganna með 41% greiddra atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×