NATO býður samvinnu um eldflaugavarnir 7. desember 2011 04:00 Fogh Rasmussen segir Medvedev Rússlandsforseta ekki hafa útilokað frekari viðræður við NATO um eldflaugavarnir og vill reyna til þrautar að ná samkomulagi. mynd/NATO
Forystumenn Atlantshafsbandalagsins (NATO) reyna nú að sannfæra Rússa um að áform bandalagsins um varnir gegn langdrægum eldflaugum beinist ekki gegn þeim á nokkurn hátt. Utanríkisráðherrar NATO, sem koma saman til reglulegs fundar í Brussel í dag, munu á morgun eiga fund með Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, skrifaði grein í International Herald Tribune í gær, þar sem hann segir að nýleg gagnrýni Dimitrís Medvedev, forseta Rússlands, á eldflaugavarnakerfi NATO og skort bandalagsins á samstarfsvilja sé á misskilningi byggð. Medvedev hótaði að staðsetja rússneskar eldflaugar nálægt flaugum NATO. Rasmussen leggur áherzlu á að bæði NATO og Rússlandi stafi ógn af um 30 ríkjum sem hafi komið sér upp langdrægum eldflaugum. „Það er skynsamlegt að við vinnum saman að því að verjast þeim, með því að smíða tvö aðskilin kerfi með sama markmið,“ skrifar framkvæmdastjórinn. „Afstaða NATO er skýr. Við þurfum á eldflaugavörnum að halda en viljum byggja þær upp þannig að þær styrki samband okkar og samstarf við Rússland,“ sagði hátt settur embættismaður NATO í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í gær. „Það tilboð stendur.“ NATO stefnir að því að geta lýst því yfir á leiðtogafundi bandalagsins í Chicago í maí á næsta ári að fyrsti áfangi eldflaugavarnakerfis bandalagsins sé tilbúinn til notkunar. Tyrkland, Pólland og Rúmenía, auk fleiri NATO-ríkja, hafa lagt til aðstöðu fyrir varnareldflaugar. - óþs
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira