Terry: Við getum stolið titlinum á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2011 09:15 John Terry, fyrirliði Chelsea í leik á móti United. Mynd/Nordic Photos/Getty
John Terry, fyrirliði Chelsea, fagnaði að sjálfsögðu úrslitum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en þau þýða að Chelsea getur nú komist á toppinn með sigri á Manchester United á Old Trafford um næstu helgi. Chelsea vann 2-1 sigur á Tottenham á sama tíma og Arsenal vann 1-0 sigur á United. Chelsea var fimmtán stigum á eftir Manchester United í mars og Terry segir að takist liðinu að vinna meistaratitilinn nú verði það jafn sætt og þegar fyrsti meistaratitill félagsins í fimmtíu ár vannst árið 2005. „Þessi yrði örugglega jafn sætur og sá sem við unnum eftir 50 ára bið. Það voru tímapunktar þar sem þeir voru að stinga af og þá hélt ég að við ættum ekki lengur möguleika. Að verða nú komnir bara þremur stigum á eftir þeim sýnir hvað við höfum afrekað og það að við gefumst aldrei upp," sagði John Terry. Framundan er hálfgerður úrslitaleikur milli Manchester United og Chelsea á sunnudaginn kemur. „United á líka eftir nokkra erfiða leiki. Ef við förum þangað og töpum þá eiga þeir titilinn vísann en þeir vita að við getum komið á Old Trafford og náð góðum úrslitum. Stjórinn okkar er búinn að halda öllum við efnið og ýta undir hungrið í liðinu og það hefur líka verið mikilvægt að hafa stuðningsmenn okkar að baki okkur allan tímann. Þeir leyfðu okkur aldrei að gefast upp," sagði Terry. „Það er ekki til betri hvatning en að geta farið á Old Trafford og stolið titlinum. Með sigri þá komum við okkur í lykilstöðu til þess að koma með bikarinn aftur á Brúnna og sú staðreynd mun gefa okkur aukakraft í þessum leik," sagði Terry.
Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Sjá meira