Stangast á við orð Murdochs 17. ágúst 2011 07:45 Clive Goodman
Clive Goodman, fyrrverandi blaðamaður á breska æsifréttablaðinu News of the World, segir að símhleranir hafi verið mikið notaðar á ritstjórn blaðsins með vitund og fullu samþykki yfirmanna. Þetta kemur fram í bréfi, sem Goodman skrifaði fyrir fjórum árum en rannsóknarnefnd breska þingsins hefur nú gert opinbert. Þessar fullyrðingar Goodmans, sem hefur hlotið dóm fyrir símhleranir, stangast á við yfirlýsingar yfirmanna og eigenda blaðsins, sem hafa statt og stöðugt haldið því fram að Goodman hafi verið eini blaðamaðurinn á blaðinu sem hafi haft eitthvað með þessar símanjósnir að gera. Í bréfinu, sem stílað er á Daniel Cloke, þáverandi framkvæmdastjóra hjá News International, fyrirtækinu sem gaf út News of the World, segir Goodman berum orðum að símanjósnir hafi verið „mikið ræddar á daglegum ritstjórnarfundum þangað til ritstjórinn bannaði allar beinar vísanir til þeirra“. Goodman segist í bréfinu einnig hafa fengið leyfi yfirmanna sinna til þess að stunda símnjósnir og fleiri blaðamenn hafi gert slíkt hið saman. Breska þingnefndin íhugar nú að kalla James Murdoch, eiganda blaðsins, á ný til yfirheyrslu. Fyrrverandi yfirmenn hjá News of the World búa sig nú undir að koma fyrir nefndina í september. - gb
Mest lesið Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira