Sjálfstætt Wales væri 39 prósentum ríkara 17. ágúst 2011 08:15 Sjálfstæðisbaráttan í Wales er ekki ýkja burðug en Adam Price vonar að ný rannsókn sín ýti við fólki. Samkvæmt henni standa smáríki sig betur innan Evrópusambandsins en stór ríki. Nordicphotos/afp
Ef Wales hefði sagt skilið við Bretland og fengið sjálfstæði þegar Berlínarmúrinn féll, árið 1989, væri það um 39 prósentum ríkara land en það er. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Adams Price, sem var áður þingmaður í Wales en starfar nú við Harvard-háskóla. Rannsóknarskýrslan fjallar um smáríki í Evrópu og efnahagskrísuna og skoðar Price hvort stærð ríkja hafi hugsanlega áhrif á efnahagslega velgengni. Samkvæmt skýrslunni hefði hagvöxtur í Wales verið að meðaltali 2,5 prósentum meiri á ári hverju ef það hefði verið sjálfstætt á tímabilinu. Price sér fyrir sér að Wales geti staðið á eigin fótum innan Evrópusambandsins og hefur sérstaklega borið saman ríki innan þess. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að innan ESB farnist smáríkjum betur en þeim stóru. „Það virðist vera einhver smáríkjabónus. Ef ríkið er lítið, síðustu þrjátíu árin í Evrópusambandinu, þá gengur því betur," segir Price við BBC. Þá gefur rannsóknin til kynna að smáríki vinni sig fyrr út úr kreppum en önnur. Niðurstöður Price breyta því ekki að Walesbúar eru íhaldssamir í þessum efnum. Einungis tíu prósent þeirra vilja sjálfstæði, samkvæmt skoðanakönnunum. - kóþ
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Fleiri fréttir Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Sjá meira