Enski boltinn

Eiður til Ajax? - beðið eftir Suarez

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Stoke.
Eiður Smári í leik með Stoke. Nordic Photos / Getty Images

Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að það sé mögulegt að Eiður snúi aftur til Hollands á næstunni.

Eiður hefur verið orðaður við Ajax í Hollandi en hann var á sextánda aldursári þegar hann gekk til liðs við PSV Eindhoven árið 1994 og var hann á mála hjá liðinu í fjögur ár.

Eiður Smári hefur verið hjá Stoke í Englandi síðan í lok ágúst en hefur aldrei fengið tækifæri í byrjunarliði liðsins.

Haft er eftir Arnóri á vef Daily Mail í dag að beðið sé eftir því hvort að Luis Suarez verði seldur frá Ajax en hann hefur helst verið orðaður við Liverpool á Englandi.

„Við vitum af áhuga Ajax en ekkert mun gerast fyrr en eftir að gengið verður frá sölu Suarez," er haft eftir Arnóri.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×