Ancelotti klár í slaginn á nýjan leik Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. september 2011 21:15 Ancelotti stýrði Chelsea í síðasta sinn gegn Everton í lokaumferð ensku úrvasldeildarinnar í maí. Nordic Photos / Getty
Carlo Ancelotti, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segist klár í slaginn á nýjan leik bjóðist gott tækifæri. Hann segist aldrei hafa sagst ætla að taka sér eins árs frí frá störfum sem knattspyrnustjóri. Ancelotti var rekinn að loknum síðasta leik Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Liðið vann engan titil en hafði árið áður unnið tvöfalt undir stjórn Ítalans. „Ég hef aldrei sagst vilja taka mér árs frí. Ég hef sagt að það væri ekki vandamál að vera fjarri leiknum í ár á meðan ég leita mér að nýju verkefni. Ef það kemur góð lausn, rétta félagið þá væri ég mjög ánægður," segir Ancelotti. Ancelotti segist vilja hefja hvern dag á að mæta á æfingasvæðið. Hann hafi ekki saknað þess í sumar enda voru engir leikir í gangi. Hann leggur áherslu á að hann sé ekki bitur út í forsvarsmenn Chelsea fyrir brottvikninguna úr starfi knattspyrnustjóra. Forráðamenn félagsins biðu ekki boðanna og ráku Ancelotti strax að loknum leiknum gegn Everton. „Hver hefði verið tilgangurinn að bíða?" segir Ancelotti. „Ef þeir hafa eitthvað að segja mér vil ég frekar heyra það á stundinni. Ég taldi alltaf að framtíð mín myndi ráðast af úrslitunum. Ég vildi vera áfram," segir Ancelotti við breska fjölmiðla. Hann leggur áherslu á að framkvæmdastjóri Chelsea, Ron Gourlay, hafi staðið fagmannlega að brottrekstrinum. Leikmenn hafi verið komnir í rútuna og þeir hafi rætt málin inni í búningsklefanum.
Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira