Íslenski boltinn

Kjartan Henry: Það á ekki að vera hægt að klikka víti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í sumar.
Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í sumar.
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, tók undir með blaðamanni að kalla mætti sigurinn Vesturbæjarliðsins baráttusigur.

„Það er alltaf svona, þegar maður ver víti þá fær maður spark í rassinn. Það gerðist í dag. Við byrjuðum þetta ekki nægilega vel en náðum að skora tvö mörk og það eru mörkin sem telja. Baráttusigur."

Kjartan hefur verið ískaldur á punktinum í sumar og skoraði af fádæma öryggi.

„Ég er búinn að æfa vítin og þangað til ég klúðra held ég áfram að taka vítin. Það á ekki að vera hægt að klikka víti. Það er bara einbeitingarleysi. Það var öruggt í dag, í innri stöngina."

Kjartan var diplómatískur í svörum um hvort liðið hefði ekki tekið stórt skref í átt að titlinum í kvöld.

„Bara eitt af þessum mörgu skrefum. Verður maður ekki að vera dipló þegar liðin í kringum okkur eru að vinna sína leiki. Það eina sem við getum gert er að hugsa um okkur og hafa áhrif á okkar frammistöðu. Ef við vinnum leiki erum við að taka skref í átt að titlinum."

Kjartan hefur verið duglegur að sanka að sér spjöldum í sumar og þarf að passa sig ætli hann ekki að missa úr fleiri leiki vegna leikbanns.

„Ég má ekki fá eitt í viðbót, þá fer ég í bann aftur. Ég er náttúrulega ákafur og þarf að berjast fyrir mínu. Það er stundum sem maður á skilið að fá spjöld og stundum ekki. Ég verð að passa mig, það er rétt, og reyna að hrósa dómaranum frekar en að öskra á hann," sagði Kjartan léttur í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×