Kjartan Henry: Það á ekki að vera hægt að klikka víti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2011 21:07 Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í sumar.
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, tók undir með blaðamanni að kalla mætti sigurinn Vesturbæjarliðsins baráttusigur. „Það er alltaf svona, þegar maður ver víti þá fær maður spark í rassinn. Það gerðist í dag. Við byrjuðum þetta ekki nægilega vel en náðum að skora tvö mörk og það eru mörkin sem telja. Baráttusigur." Kjartan hefur verið ískaldur á punktinum í sumar og skoraði af fádæma öryggi. „Ég er búinn að æfa vítin og þangað til ég klúðra held ég áfram að taka vítin. Það á ekki að vera hægt að klikka víti. Það er bara einbeitingarleysi. Það var öruggt í dag, í innri stöngina." Kjartan var diplómatískur í svörum um hvort liðið hefði ekki tekið stórt skref í átt að titlinum í kvöld. „Bara eitt af þessum mörgu skrefum. Verður maður ekki að vera dipló þegar liðin í kringum okkur eru að vinna sína leiki. Það eina sem við getum gert er að hugsa um okkur og hafa áhrif á okkar frammistöðu. Ef við vinnum leiki erum við að taka skref í átt að titlinum." Kjartan hefur verið duglegur að sanka að sér spjöldum í sumar og þarf að passa sig ætli hann ekki að missa úr fleiri leiki vegna leikbanns. „Ég má ekki fá eitt í viðbót, þá fer ég í bann aftur. Ég er náttúrulega ákafur og þarf að berjast fyrir mínu. Það er stundum sem maður á skilið að fá spjöld og stundum ekki. Ég verð að passa mig, það er rétt, og reyna að hrósa dómaranum frekar en að öskra á hann," sagði Kjartan léttur í leikslok.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Fleiri fréttir Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik Sjá meira