Erlent

Aldrei fleiri kvenforstjórar í Bandaríkjunum

Heather Bresch er nýráðinn forstjóri lyfjafyrirtækisins Mylan.
Heather Bresch er nýráðinn forstjóri lyfjafyrirtækisins Mylan.
Eftir að Heather Bresch tók við forstjórastól lyfjafyrirtækisins Mylan er ljóst að kvenforstjórar hafa aldrei verið fleiri en nú. Í nýjastu útgáfu Fortune 500 eru 18 konur titlaðar sem forstjórar.

Bresch er yngsti kvenforstjórinn en hún er 42 ára gömul.

Fortune 500 er listi sem tímaritið Forbes tekur saman og gefur út einu sinni á ári. Á listanum má finna 500 stærstu fyrirtæki í Bandaríkjunum.

Meg Whitman, forstjóri Hewlitt-Packard, er efsta konan á listanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×