Andre Villas-Boas tileinkaði Terry sigurinn Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 27. október 2011 10:30 Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, tileinkaði John Terry 2-1 sigur Chelsea gegn Everton í deildarbikarkeppninni í gær. Nordic Photos / Getty Images
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, tileinkaði John Terry 2-1 sigur Chelsea gegn Everton í deildarbikarkeppninni í gær. Chelsea tryggði sér sigur í framlengingu en Terry sem er fyrirliði Chelsea var ekki í leikmannahópnum. Enska knattspyrnusambandið rannsakar þessa dagana mál sem tengist Terry en hann er ásakaður um kynþáttahatur í garð Anton Ferdinand varnarmanns QPR. „Ég held að allir leikmenn liðsins vilji tileinka John Terry sigurinn,“ sagði Portúgalinn eftir leik í gær. Enska knattspyrnusambandið er þessa dagana að fara yfir öll gögn sem tengjast meintu kynþáttaníði John Terry fyrirliða Chelsea og enska landsliðsins. Terry og Anton Ferdinand varnarmaður QPR deildu harkalega þegar liðin áttust við um s.l. helgi þar sem Heiðar Helguson skoraði sigurmarkið QPR. Þar á Terry að hafa notað niðrandi orð sem tengjast litarhætti Ferdinand. Forráðamenn QPR hafa neitað því að þrír leikmenn liðsins hafi verið kallaðir inn sem vitni í málinu.Terry þarf að svara fyrir sig á næstu dögum en myndbandsupptökur frá atvikinu benda til þess að eitthvað hafi gengið á í samskiptum þeirra Terry og Ferdinand. Terry sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann neitar því að hafa notað niðrandi orð um Ferdinand.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira