Erlent

Framleiðendur BlackBerry kærðir

Kerfisbilunin stóð yfir í 4 daga.
Kerfisbilunin stóð yfir í 4 daga. mynd/AFP
BlackBerry notendur í Bandaríkjunum og Kanada hafa kært framleiðendur snjallsímans vegna kerfisbilunar sem átti sér stað fyrr í mánuðinum.

Bilunin olli því að milljónir notenda höfðu ekki aðgang að tölvupósti sínum, smáskilaboðum og interneti.

Í yfirlýsingu frá Research in Motion (RIM), framleiðandi BackBerry, kemur fram að fyrirtækið muni bregðast við kærunum á næstu dögum.

RIM hefur verið gagnrýnt fyrir að endurgreiða notendum sínum ekki vegna bilunarinnar. Notendur BlackBerry greiða mánaðarlegt gjald fyrir aðgang að þjónustu fyrirtækisins.

Bilunin átti sér stað 10. október og stóð yfir í fjóra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×