Erlent

Samuel L. Jackson er arðbærasti leikari allra tíma

Jackson sem Jules Winnfield í Pulp Fiction frá árinu 1994.
Jackson sem Jules Winnfield í Pulp Fiction frá árinu 1994.
Samkvæmt heimsmetabók Guinness er Samuel L. Jackson arðbærasti leikari allra tíma.

Jackson leikur að meðaltali í fjórum myndum á ári og það má segja að hann kunni að velja sér rétt hlutverk, jafnvel þó að þau séu lítil.

Kvikmyndir eins og Jurrasic Park, Pulp Fiction og Star Wars eru allar gríðarlega vinsælar.

Sú staðreynd að Jackson sé nú orðinn arðbærasti leikari veraldar kemur á heldur sérstökum tíma. Þessa stundin er Jackson að ljúka tökum á The Avengers en talið er að sú mynd eigin eftir að vera ein sú vinsælasta í sögu Hollywood.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×