Erlent

Lá í rústunum í 100 klukkutíma

mynd/AFP
Fréttamiðlar í Tyrklandi greindu frá því í dag að björgunarmenn hefðu fundið ungan mann á lífi í rústum fjölbýlishúss í bænum Ercis. Maðurinn hafði legið í rústunum í rúma 100 klukkutíma.

Björgunarmönnum tókst að draga manninn úr húsarústunum og var hann fluttir á spítala um hæl.

Yfirvöld í Tyrklandi telja að 523 hafi látist í kjölfar jarðskjálftans í austurhluta landsins um helgina. Að auki slösuðust 1.650 manns. Talið er að jarðskjálftinn hafi verið 7,2 stig.

Alls hefur 186 manns verið bjargað úr rústunum í Tyrklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×