Manchester United með fullt hús stiga eftir sigur á Chelsea Stefán Árni Pálsson skrifar 18. september 2011 00:01 Mynd. / Getty Images
Manchester United eru óstöðvandi í ensku úrvalsdeildinni þessa daganna og hafa unnið alla leikina á tímabilinu, en í dag varð Chelsea fyrir barðinu á United. Manchester United sigraði Chelsea 3-1 á Old Trafford og er sem fyrr á toppi deildarinnar. Cris Smalling kom heimamönnum yfir með marki á 8. mínútu leiksins, en Smalling skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Ashley Young. Luis Nani skoraði síðan stórkostlegt mark á 37. mínútu með skoti lengst utan af velli, alveg óverjandi fyrir Peter Cech í marki Chelsea. Wayne Rooney skoraði síðan þriðja mark Manchester United rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en skelfileg varnarmistök voru þess valdandi að Rooney fékk boltann einn fyrir framan markið og setti knöttinn auðveldlega í netið. Spánverjinn Fernando Torres komst loksins á blað fyrir Chelsea á tímabilinu þegar hann náði að minnka muninn fyrir gestina í upphafi síðari hálfleiks. Torres fékk frábæra stungusendingu inn fyrir vörn Manchester United og lyfti boltanum fyrir David de Gea í marki United. Á 83. mínútu fékk Fernando Torres algjört dauðafæri en hann komst einn í gegn og aðeins autt markið beið hans. Torres náði á einhvern óskiljanlegan hátt að skjóta framhjá og mun varla sofa lengi í nótt. Man. Utd. sigraði því leikinn 3-1 og eru enn ósigraðir í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, en liðið hefur skorað 21 mark og fengið aðeins á sig fjögur.Staðan í ensku úrvalsdeildinni
Mest lesið Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Enski boltinn Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Áfram þrátt fyrir tap í Íslendingaslag Handbolti Mikið tap á rekstri HSÍ: „Verulegar áhyggjur“ Handbolti Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Íslenski boltinn Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Körfubolti Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Körfubolti Fleiri fréttir Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Sjá meira