Vill leggja auknar byrðar á hátekjufólk 18. september 2011 12:00
Barack Obama, bandaríkjaforseti, stefnir að því að hækka skattlagningu á ríkustu samlanda sína. Reglurnar eru svör við ákalli um að auðmenn axli auknar byrðar við lausn á skuldavanda landsins. Enn liggur ekki nákvæmlega fyrir hvernig frumvarpið verður útfært. Þó er víst að hinn fyrirhugaði skattur verður lagður á heimili sem hafa yfir eina milljón bandaríkjadala - eða tæpar hundrað og sautján milljónir króna - í árstekjur. Starfsmenn Hvíta hússins segja að Obama muni skýra frumvarp sitt nánar á morgun um leið og hann kynnir langtíma áætlun sína til að minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna. Frumvarpið er nefnt Buffett-reglan, í höfuðið á bandaríska fjárfestinum og hátekjumanninum Warren Buffett. Síðastliðið sumar skrifaði Warren Buffett grein í New York times þar sem hann hvatti Bandaríkjaþing til að hækka skatta á hina launahæstu. Hann sagði ósanngjarnt að á meðan stjórnmálamenn kalli eftir sameiginlegum fórnarkostnaði þjóðarinnar og miðstéttin berjist í bökkum við að ná endum saman hafi hann og hinir ofurríku félagar hans ekki þurft að fórna neinu. Buffett benti í grein sinni á að hann hefði aðeins greitt sautján komma fjögur prósent af innkomu sinni í skatt, meðan venjulegir borgarar greiði frá þrjátíu prósentum og upp í fjörtíu og eitt. Hann óskar vinsamlega eftir því að stjórnmálamenn hætti að dekra við hálaunafólk. Og nú ætlar Obama sér að verða við þeirri ósk. Líkur standa til þess að tillagan muni hljóta mikla mótstöðu í þinginu, enda hafa repúblikanar lýst því yfir að þeir muni standa gegn öllum skattahækkunum. Obama, sem stendur frammi fyrir kosningum á næsta ári, þarf hins vegar að finna leiðir til að leysa skuldavanda landsins.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Fleiri fréttir Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Sjá meira