Ísrael: umsókn Palestínu verður ekki samþykkt 18. september 2011 14:00
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, telur að umsókn Palestínumanna um aðild að Sameinuðu þjóðunum muni ekki bera árangur. Hann segir að viðurkenning á ríki Palestínumanna og varanlegur friður náist eingöngu með beinum samningaviðræðum. Palestínumenn munu að öllum líkindum leggja fram umsókn sína um aðild að Sameinuðu þjóðunum í næstu viku. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna mun taka við henni og leggja hana fyrir Öryggisráðið, þar sem 15 ríki eiga sæti. Ísraelar og Bandaríkjamenn eru þessari umsókn afar mótfallnir, en Palestínumenn eru vongóðir og búast við að verði umsóknin samþykkt, þá muni það draga úr afskiptum Ísraela. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, lét hafa eftir sér við þarlenda fjölmiðla í dag að hann telji ólíklegt að umsókn Palestínumanna fái hljómgrunn í Örygissráðinu. Viðurkenningu á sjálfstæðu ríki Palestínumanna og varanlegum frið verði aðeins náð með beinum samningaviðræðum. Bandarísk stjórnvöld hafa ýjað að því að þau muni beita neitunarvaldi í Öryggisráðinu verði umsókn Palestínumanna afgreidd þar. Fulltrúar Miðausturlandakvartettsins svokallaða, sem samanstendur af Sameinuðu þjóðunum, Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Rússlandi, munu funda í New York í dag til reyna að sannfæra Palestínumenn um að falla frá áformum sínum um að krefjast viðurkenningar á ríkinu hjá Sameinuðu þjóðunum. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sagði á föstudag að aðild að Sameinuðu þjóðunum væri lögvarinn réttur Palestínumanna. Hann sagði að friðarviðræður við Ísraela hefðu engan árangur borið en Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir að palestínsk stjórnvöld hafi ítrekað forðast frekari samningaviðræður við ísraelsk stjórnvöld. Palestína hefur sem stendur aðeins stöðu áheyrnarfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum. Greint er frá því í bandarískum fjölmiðlum í dag að Barack Obama, forseti Bandaríkjana, muni funda með Netanyahu vegna friðarviðræðna sem hafi stöðvast milu Palestínu og Ísraels. Fulltrúar bandarískra stjórnvalda fyrir botni Miðjarðarhafs hafa að undanförnu fundað með fulltrúum bæði Ísraela og Palestínumanna til að freista þess að endurvekja friðarviðræður og koma í veg fyrir að umsókn Palestínumanna um aðild verði afgreidd á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Sjá meira