Enski boltinn

Adebayor: Mikilvægt að skora á heimavelli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adebayor fagnar hér marki sínu ásamt Scott Parker.
Adebayor fagnar hér marki sínu ásamt Scott Parker. Mynd. / Getty Images
Emmanuel Adebayor, leikmaður Tottenham Hotspurs, skoraði tvö mörk fyrir liðið þegar það gjörsigraði Liverpool 4-0 á White Hart Lane í dag.

Adebayor kom til félagsins frá Real Madrid fyrir leiktíðina og var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu í dag.

„Ég er gríðarlega ánægður, það er svo mikilvægt að skora mörk á heimavelli fyrir framan aðdáendur liðsins“.

„Aðdáendur Tottenham elska mig því þeir vita að ég mun skora mörk fyrir félagið. Vonandi get ég haldið áfram að standa mig og koma boltanum oftar í netið“.

„Það sem skiptir mestu máli er að við náðum í þrjú stig í dag og sýndum frábæra spilamennsku“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×