Andy Carroll skoraði tvívegis í 3-0 sigri Liverpool 11. apríl 2011 17:40 Andy Carroll fagnar hér fyrsta marki sínu fyrir Liverpool. Nordic Photos/Getty Images
Liverpool sýndi góða takta gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld með 3-0 sigri. Andy Carroll skoraði tvívegis fyrir Liverpool og eru þetta fyrstu deildarmörk hans frá því hann kom í lok janúar frá Newcastle. Manchester City virðist í lægð þessa stundina og fátt sem bendir til þess að liðið nái góðum úrslitum á Wembley í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar gegn Manchester United um næstu helgi. Liverpool er í fjórða sæti deildarinnar með 48 stig en Man City er með 56 stig í fjórða sæti. Stuðningsmenn Liverpool hafa beðið eftir því að framherjinn Andy Carroll opnaði markareikninginn og hann gerði það með stæl strax á 12. mínútu. Raul Meireles átti skot að marki, boltinn hafnaði í Vincent Kompany varnarmanni City. Boltinn barst til Carroll sem þrumaði boltanum af um 20 metra færi með vinstri í markið án þess að Joe Hart kæmi vörnum við. Dirk Kuyt bætti við öðru marki fyrir heimamenn á 33., mínútu og Carroll bætti við þriðja markinu einni mínútu síðar. Staðan í hálfleik var 3-0. Markið hjá Kuyt kom eftir mikla pressu frá Liverpool þar sem að varnarmenn Man City höfðu varið skot frá Aurelio og Suarez. Kuyt fékk boltann í vítateignum og skoraði laglega. Annað markið hjá Carroll skoraði þriðja markið með skalla eftir fyrirgjöf frá Meireles. Vörumerki framherjans og hann var fenginn í lið Liverpool til þess að sýna þessa hæfileika. Skömmu síðarr reifa Carlos Tevéz af sér fyrirliðabandið hjá Man City þar sem hann tognaði í aftanverðum lærvöðva og fór hann af leikvelli. Það eru vondar fréttir fyrir Man City sem leikur næst gegn Manchester United á Wembley í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira