Morð og kaupæði á Oxford-stræti Hugrún Halldórsdóttir skrifar 26. desember 2011 19:30
Talið er að tæplega sex milljónir Breta hafi freistast til að gera góð kaup í dag, við upphaf jólaútsölunnar. Morðárás í verslun á Oxford-street í Lundúnum setti svartan blett á daginn þar ytra. Þeir allra hörðustu hófu verslunarleiðangur sinn í gærkvöldi, um hálfum sólarhring fyrir opnun. Verslunardagurinn hófst svo eldsnemma í morgun og líktust kaupglaðir viðskiptavinir einna helst kúnum þegar þeim er hleypt út í fyrsta sinn á vorin. Talið er að 5,6 milljónir hafi lagt leið sína í breskar verslanir á þessum degi sem kallaður er Boxing day þar ytra. Jólaverslunin í Bretlandi hefur ekki gengið sem skyldi þetta árið og tóku margir verslunareigendur upp á því að lækka verð á vörum sínum nokkrum dögum fyrir hátíðarnar. Vegna þessa er talið að margir hafi nú þegar keypt flest allt sem þeir þurfa og sala dagsins í dag gæti því orðið minni miðað við síðustu ár. Þá er búist við að sólarhrings verkfall starfsmanna neðanjarðarlesta í Lundúnum eigi eftir að draga enn frekar úr sölunni. Veðurguðirnir hafa þó verið breskum sölumönnum hliðhollir en óvenjuhlýtt er nú á Bretlandi miðað við árstíma. Hörmulegur atburður sem átti sér stað um tvöleytið í versluninni Foot Lockers á Oxford-stræti skyggði á daginn en þar var átján ára gamall maður stunginn til bana. Margar verslanir á svæðinu ákváðu í ljósi atburðanna að loka fyrr en áætlað var en tíu hafa verið handteknir í tengslum við morðið, sem er í rannsókn.
Mest lesið Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Erlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Sjá meira