Ferguson samþykkir að hitta forstjóra BBC Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2011 20:30 Ferguson hefur ekki rætt við BBC síðan 2004. Nordic Photos / Getty Images
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur samþykkt að funda með Mark Thompson, forstjóra breska ríkisútvarpsins, til að reyna að leysa margra ára deilu Ferguson við BBC. Það var stjórn ensku úrvalsdeildarinnar sem hafði milligöngu um fundinn en Ferguson hefur ekki rætt við BBC undanfarin sjö ár. Ástæðan er sú að árið 2004 sýndi BBC heimildamynd um son hans, Jason, sem Ferguson var ekki sáttur við. Hann hefur alla tíð síðan þá neitað að koma í viðtöl við BBC fyrr en að fyrirtækið biðst opinberlega afsökunnar á því sem kom fram í myndinni. Jason starfaði þá sem umboðsmaður knattspyrnumanna og í myndinni komu fram ásakanir um mútustarfssemi og að hann hafi nýtt sér tengsl föður hans í knattspyrnuheiminum. Þessu neituðu þeir feðgar alfarið. Samkvæmt því sem kemur fram í enskum fjölmiðlum í dag eru litlar líkur taldar á því að Thompson muni biðjast afsökunar á einu eða neinu en vonast er til þess að fundurinn muni mögulega breyta einhverju til hins betra. Ferguson ber eins og öðrum knattspyrnustjórum liða í ensku úrvalsdeildinni að ræða við fjölmiðla eftir leiki, þar á meðal BBC. Brot á þessu varðar við sektir en stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur neitað að gefa upp hversu há sekt Ferguson er orðin. Talið er að hún hækki í hvert skipti sem Ferguson neitar að ræða við BBC og að hún nemi nú tugum milljóna króna.
Mest lesið Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn