Íslenski boltinn

Rutgers líklega ekki áfram hjá KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mark Rutgers, til hægri.
Mark Rutgers, til hægri. Mynd/Anton

Ólíklegt er að Mark Rutgers verði áfram í herbúðum KR eftir því sem umboðsmaður hans segir í samtali við Fótbolta.net.

Samningur Rutgers við KR rann út í haust og hafa aðilar ekki náð saman um nýjan samning.

Bram van Barneveld, umboðsmaður Rutgers, á von á því að málin klárast í næstu viku en enn sem komið er hefði ekki borist svar frá KR um framhaldið.

Hann sagði líklegt að Rutgers myndi ekki spila áfram á Íslandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×