Ferguson: Lundúnir fara á annan endann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. mars 2011 14:15 Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur varað við því að allt muni fara á annan endann í Lundúnum helgina sem báðir undanúrslitaleikirnir fara fram í ensku bikarkeppninni. Báðir leikirnir munu fara fram á Wembley-leikvanginum en Manchester United, lið Ferguson, mun mæta grönnum sínum í Manchester City þann 16. apríl. Degi síðar eigast við Bolton og Stoke. Þessa sömu helgi mun Arsenal taka á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og hið árlega Lundúnamaraþon mun þar að auki eiga sér stað. „Það er von á 60 þúsund stuðningsmönnum frá Manchester. Hversu mikla bensíneyðslu mun það hafa í för með sér,“ sagði Ferguson við enska fjölmiðla. „Fjölmargir stuðningsmenn úr norðvesturhluta Englands munu fara til London þessa sömu helgi - stuðningsmenn Stoke, Bolton, City, United og Liverpool. Þá er líka von á fjölmörgum sem munu fylgjast með maraþoninu.“ „Það mun ríkja algjör ringulreið þarna.“ Undanúrslitaleikirnir í enska bikarnum hafa farið fram á Wembley síðan 2008 en því vill Ferguson breyta. Það má þó færa rök fyrir því, eins og margir enskir fjölmiðlar benda á, að áhugi fyrir leikjunum er mjög mikill og að líklegt sé að uppselt verði á báða leiki en Wembley-leikvangurinn getur tekið 90 þúsund áhorfendur í sæti.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira