Ancelotti var rekinn í ganginum á Goodison Park Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2011 09:45 Carlo Ancelotti, fyrrum stjóri Chelsea. Mynd/AP
Chelsea-menn voru ekkert að bíða með það að reka Carlo Ancelotti eftir tapleikinn á móti Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Mörgum finnst framkoma Chelsea gagnvart stjóra sínum vera afar harðbrjósta þó svo að enginn titill hafi komið í hús á þessu tímabili. Ancelotti fékk aðeins að klára blaðamannafundinn eftir leikinn en strax eftir hann kom Ron Gourlay, stjórnarformaður Chelsea til hans á ganginum á Goodison Park og tilkynnti Ítalanum að hann yrði rekinn. Þetta gerðist því aðeins klukkutíma eftir að leiknum lauk og löngu áður en liðið flaug aftur heim til London. Þetta minnti mikið á það þegar forráðamenn West Ham ráku Avram Grant í göngunum eftir tap á móti Wigan Athletic um síðustu helgi en með því féll West Ham liðið úr ensku úrvalsdeildinni. Chelsea vann tvöfalt á fyrsta tímabili sínu undir stjórn Carlo Ancelotti en það hefur margt gengið á afturfótunum á þessu tímabili. Ancelotti sjálfur segist hafa búist við því að verða rekinn eftir tapið fyrir Manchester Unitec á Old Trafford 8. maí síðastliðinn. Hann fær væntanlega 6 milljónir punda í starfslokasamning sem eru svo sem ágætis sárabót. Roman Abramovich, rússneski eigandi Chelsea, var ekki staddur á Goodison Park í gær en hann er nú að hefja leit sína að sjöunda stjóranum á átta árum. Guus Hiddink er víst hans fyrsti kostur.
Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira