Lukkan ekki í Arsenal-búningnum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2011 06:00 Leikmenn Arsene Wenger hafa skotið 21 sinni í stöngina og út á þessu tímabili. Nordic Photos / Getty Images
Hvernig væri staðan í ensku deildinni ef öll stangarskotin hefðu farið í stöngina og inn í staðinn fyrir að fara í stöngina og út? Fyrirtækið Opta sér um alla tölfræðivinnslu í ensku úrvalsdeildinni og það hefur nú einmitt tekið saman þessa tölfræði úr fyrstu 35 umferðunum á leiktíðinni. Arsenal-liðið er búið að missa af möguleikanum á því að vinna enska titilinn og stuðningsmenn geta vottað um það að lukkan hefur ekki verið með strákunum hans Arsene Wenger. Nú geta þeir líka rökstutt þessa kenningu sína með umræddri tölfræði frá Opta. Opta skoðaði það hver staðan væri í deildinni ef öll stangarskot hefðu orðið mark. Arsenal-liðið hefur alls átt 21 stangarskot í deildinni og væri þá með 19 fleiri stig ef þessi skot hefðu skilað sér í markið. Í stað þess að vera sex stigum á eftir toppliði Manchester United væri Arsenal-liðið þess í stað með 12 stiga forskot á Chelsea og þrettán stigum meira en United. Liverpool-menn myndu líka gleðjast ef stangarskotin þeirra hefðu farið inn því Liverpool sæti þá í Meistaradeildarsæti þar sem Manchester City hefur hagnast mikið á stangarskotum. City væri með sex stigum færra og þremur stigum á eftir Liverpool ef öll stangarskotin hefðu farið í markið í vetur. West Ham er annað lið sem kemur vel út úr þessari tölfræði því í stað þess að vera á botninum eins og liðið er í dag væru Hamrarnir í 13. sæti, átta stigum frá fallsætinu. Newcastle sæti hins vegar í fallsætinu ásamt Birmingham og Blackpool. Stöngin-inn deildin1. Arsenal 86 stig (+19, er í 3. sæti) 2. Chelsea 74 stig (+4, 2. sæti) 3. Man. United 73 stig (0, 1. sæti) 4. Liverpool 59 stig (+4, 5. sæti) 5. Man. City 56 stig (-6, 4. sæti) 6. Tottenham 56 stig (+1, 6. sæti) 7. Everton 47 stig (-1, 7. sæti) 8. Stoke 47 stig (+4, 10. sæti) 9. Aston Villa 45 stig (+4, 14. sæti) 10. Bolton 45 stig (-1, 8. sæti) 11. Fulham 42 stig (-3, 9. sæti) 12. West Brom 41 stig (-2, 11. sæti) 13. West Ham 41 sitg (+9, 20. sæti) 14. Sunderland 40 stig (-1, 13. sæti) 15. Blackburn 39 stig (+1, 16. sæti) 16. Wolves 34 stig (0, 19. sæti) 17. Wigan 34 stig (-1, 18. sæti) 18. Newcastle 33 stig (-8, 12. sæti) 19. Birmingham 33 stig (-6, 15. sæti) 20. Blackpool 30 stig (-5, 17. sæti)
Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Sjá meira