Tevez segist vera klár en læknalið City er ekki alveg sammála Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2011 10:15 Carlos Tevez fer hér framhjá Brynjari Birni Gunnarssyni í bikarleik fyrr í vetur. Mynd/Nordic Photos/Getty
Carlos Tevez er á góðum batavegi og samkvæmt nýjustu fréttum á Tevez nú góða möguleika á því að ná bikarúrslitaleiknum á móti Stoke City á Wembley 14. maí næstkomandi. Það er samkvæmt því sem Tevez segir þótt að læknaliðið sé ekki alveg sammála. Tevez segir vera orðinn góður og telur sig jafnvel getað spilað á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Tevez æfði með City-liðinu í gær og fann ekki til neinna óþæginda eftir hana sem lofar góðu. Þessar góðu fréttir af Tevez koma aðeins nokkrum dögum eftir að læknalið City efaðist um að Tevez yrði orðinn nógu góður fyrir úrslitaleikinn á Wembley. Roberto Mancini, stjóri Manchester City, ítrekaði það á blaðamannafundi í gær að hann teldi aðeins helmingslíkur á því að Tevez yrði með á Wembley og ætli Argentínumaðurinn að spila úrslitaleikinn þá yrði hann að vera með í leiknum á móti Tottenham sem fer fram á þriðjudaginn í næstu viku. „Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur og hefur skorað meira en 20 mörk á tímabilinu. Hann ætlar að gera allt til þess að spila en við höfum enn eina viku upp á að hlaupa. Hann verður samt að vera búinn að spila leik fyrir úrslitaleikinn. Ef Carlos spilar ekki á móti Tottenham þá getur hann ekki verið með í úrslitaleiknum. Ég þarf alla leikmenn 200 prósent klára í bikarúrslitaleikinn og get ekki notað leikmann sem er bara 50 prósent klár," sagði Roberto Mancini.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira