Ancelotti valinn besti stjórinn annan mánuðinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2011 17:30 Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea. Mynd/Nordic Photos/Getty
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea og Peter Odemwingie, framherji West Bromwich Albion, voru bestir í aprílmánuði að mati valnefndar ensku úrvalsdeildarinnar. Ancelotti var kosinn besti stjórinn annan mánuðinn í röð og Odemwingie var kosinn besti leikmaðurinn en hann fékk samskonar verðlaun fyrir septembermánuð. Ancelotti stýrði Chelsea-liðinu inn í toppbaráttuna í apríl en liðið náði í sextán af átján mögulegum stigum í mánuðinum og minnkaði forskot United á toppnum niður í þrjú stig. Einu stigin sem töpuðust hjá Chelsea var í fyrsta leik aprílmánaðar á útivelli á móti Stoke en Chelsea vann hinsvegar hina leiki sína á móti Wigan, West Brom, Birmingham, West Ham og Tottenham og markatalan í apríl var 13-4. Peter Odemwingie hefur spilað frábærlega fyrir Roy Hodgson og á mikinn þátt í góðu gengi West Bromwich Albion upp á síðkastið. Hann fiskaði tvær vítaspyrnur í 2-1 sigri á Liverpool í upphafi mánaðarins og átti síðan þátt í öllum mörkum WBA í 3-2 sigri á Sunderland, skoraði eitt og lagði upp tvö. Odemwingie skoraði líka í leikjunum á móti Chelsea og Tottenham og gerði síðan mikilvægt jöfnunarmark í 2-1 sigri á nágrönnunum í Aston Villa í síðasta leik mánaðarins. Odemwingie átti alls beinan þátt í 8 af 10 mörkum West Bromwich Albion í apríl en aðeins Chelsea náði í fleiri stig í apríl en WBA.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira