Telja að Butch Cassidy hafi komist lifandi frá Bólivíu 19. ágúst 2011 07:20
Fornbókasali og rithöfundur í Bandaríkjunum segjast geta sannað að hinn þekkti útlagi Butch Cassidy hafi lifað af fyrirsátina í Bólívíu og komist aftur heim til Bandaríkjanna. Tvíeykið Butch Cassidy and The Sundance Kid voru einhverjir frægustu útlagar Bandaríkjanna í kringum aldamótin árið 1900. Um þá var gerð þekkt kvikmynd með þeim Robert Redford og Paul Newman í aðalhlutverkum. Talið er að útlagarnir hafi fallið í fyrirsát bólivíska hersins í smáþorpi í Bólivíu árið 1908. Fornbókasalinn Brent Ashworth og rithöfundurinn Larry Pointer segja að þeir hafi fundið áður óþekkt handrit að bók sem sanni að Cassidy hafi lifað fyrirsátina af og komist aftur til Bandaríkjanna. Þar hafi hann sest að í Washington og starfað sem vélasölumaður þar til hann lést árið 1937. Í Washington hafi Cassidy tekið upp nafnið William Philips sem er skráð fyrir hinu óþekkta handriti. Í því sé að finna ýmis atriði sem aðeins Cassidy vissi um eins og að dómari hafi eitt sinn heimsótt hann í fangelsi og boðið honum náðun. Einnig að Cassidy hafi ásamt gengi sínu eitt sinn haldið til á óþekktum stað í Big Horn fjöllunum í Montana.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Sjá meira