Hægt að taka strætó frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. desember 2011 11:31
Hægt verður að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði frá og með 2. janúar næstkomandi. Þetta er liður í stórfelldri stækkun þjónustusvæðis Strætó bs. í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Eitt samtengt leiðakerfi verður allt frá Höfn í Hornafirði og til Reykjavíkur, um uppsveitir Árnessýslu, niður í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn. Þessi breyting felur m.a. í sér að fleiri Sunnlendingar eiga möguleika á að sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins og gagnkvæmt. Fargjöld verða lægri og tímaáætlanir leiðanna verða samræmdar, svo farþegar komist hraðar á milli staða. Suðurlandi er skipt í mismunandi gjaldsvæði og fargjöld miðast við fjölda gjaldsvæða sem farið er um. Tímatöflur allra nýju leiðanna verða aðgengilegar á vef Strætó fyrir áramót og þar verður einnig að finna reiknivél sem reiknar út fargjöld með tilliti til lengdar ferðar og mismunandi fargjaldaforma. Hagkvæmast er fyrir viðskiptavini að kaupa kort og farmiða á vef Strætó en einnig verður hægt að staðgreiða vagnstjórum farið beint með peningum, debet- eða kreditkorti. Ennfremur eru farmiðar seldir á sölustöðum Strætó á Hlemmi og í Mjódd og á bæjarskrifstofum flestra þeirra sveitarfélaga sem ekið er til. Akstur hefst á fimm nýjum leiðum í ársbyrjun; leið 51 (Mjódd - Hveragerði - Selfoss - Hvolsvöllur - Vík - Skaftafell - Höfn), leið 52 (Reykjavík - Hveragerði - Selfoss - Hella - Hvolsvöllur - Landeyjahöfn), leið 71 (Hveragerði - Þorlákshöfn - Hveragerði), leið 72 (Selfoss - Borg - Laugarvatn) og leið 73 (Selfoss - Flúðir). Á sumum þessara leiða (72 og 73) þarf að bóka ferð með minnst tveggja tíma fyrirvara í síma 540 2700 og á leið 51 þarf að panta far milli Víkur og Hafnar fyrir kl. 18 daginn áður.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira