Fann dóttur sína á lífi sjö árum eftir flóðbylgju 22. desember 2011 20:03 Frá flóðunum í Indónesíu árið 2004. mynd/AP
Það eru ekki oft sem kraftaverk gerast en það má með sanni segja að sagan af litlu stúlkunni sem talið var að hefði týnt líf í flóðbylgjunni í Indónesíu árið 2004, sé kraftaverki líkust. Á annan í jólum árið 2004 skall flóðbylgja á Indónesíu eftir að jarðskjálfti upp á 8,9 á richter varð á botni Indlandshafs. Talið er að yfir 150 þúsund manns hafi týnt lífi, þar á meðal átta ára gömul stúlka, sem kölluð er Wati. Wati litla var með móður sinni og systkinum sínum þegar að flóðbylgjan skall á þorpið Ujong Baroh á Sumatra-eyjum, en fjölskyldan bjó þar. Móðir stúlkunnar var á leið með börnin sín í skjól þegar hún missti takið á Wati litlu með þeim afleiðingum að hún rann út í straumharðan sjóinn og hvarf svo fljótlega úr augsýn móðurinnar. Þrátt fyrir mikla leit fjölskyldunnar af litlu stúlkunni fannst hún aldrei og var gert ráð fyrir því að hún hefði týnt lífi í þessum miklu hörmungum. Nú sjö árum síðar, nánar tiltekið á miðvikudaginn síðasta, hitti afi hennar kunningja sinn og með honum í för var unglingsstúlka. Honum þótti hún svipa til Wati litlu en hún man ekkert um uppruna sinn og kom alveg af fjöllum þegar hann spurði hana hvort hún kannaðist við fjölskyldu sína og sjálfan sig. Hann hafði samband við dóttur sína, móður Wati litlu, sem kom á staðinn ásamt eiginmanni sínum. Eftir að hafa hitt hana voru þau alveg sannfærð um að stúlkan væri dóttir sín og þá sérstaklega vegna þess að hún er með ör á nákvæmlega sama stað og Wati litla fékk þegar hún var sex ára. Samkvæmt fréttum er óljóst hvað varð um Wati litlu á þessum sjö árum sem hún var týnd. Og þá fylgir ekki sögunni hvort að hún hafi ákveðið að koma heim með "mömmu sinni og pabba". En ef grunur foreldra hennar er réttur þá verður það að teljast kraftaverki líkast að dóttir þeirra birtist þeim, sjö árum eftir að þau töldu hana látna.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira