Erlent

Springsteen á Hróarskeldu - Björk mætir líka

Mynd/AP
Bandaríska rokkhetjan Bruce Springsteen, eða The Boss eins og hann er jafnan kallaður, kemur fram á Hróarskelduhátíðinni næsta sumar. Hann mun mæta með hljómsveit sína, E Street Band og koma fram á Appelsínugula sviðinu sem er stærsta svið hátíðarinnar.

Þetta er í fyrsta sinn í fjörutíu ára sögu þessarar merku hátíðiar sem Springsteen heiðrar hana með nærveru sinni. Nokkrir fleiri listamenn hafa tilkynnt þáttöku á hátíðinni og þar ber hæst Björk Guðmundsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×