Erlent

Fann rauðsprettu undir vélarhlífinni eftir ofsaveður

Íbúa í bænum Hirstshals brá heldur í brún þegar hann skoðaði bíl sinn á hafnarbakka bæjarins í morgun. Bíll hafði staðið á hafnarbakkanum síðan að ofsaveður skall á Jótlandi á föstudag.

Íbúinn vildi kanna ástand bílsins og fann þá stóra rauðsprettu undir vélarhlífinni. Hún hafði sennilega komið undir vélarhlífina í ofsaveðrinu. Hvernig það gerðist er hinsvegar ráðgáta. Íbúinn er þó hæstánægður og segir að rauðsprettan muni bjarga kvöldmat hans í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×