„Hinn mikli arftaki“ tekur við í N-Kóreu 19. desember 2011 12:00 Hér er ein af fáum myndum sem til eru af Kim Jong Un. Hann er lengst til vinstri á myndinn og faðir hans lengst til hægri.
Tæplega þrítugur huldumaður verður næsti leiðtogi Norður-Kóreu. Hann, Kim Jong Un mun taka við af föður sínum Kim Jong Il sem lést um helgina 69 ára að aldri. Tilkynnt var um lát leiðtogans í ríkissjónvarpi landsins í morgun og gat þulurinn ekki haldið aftur af tárum sínum þegar hann las tilkynninguna. Samkvæmt henni lést Kim Jong-Il vegna gríðarlegs vinnuálags sem leiddi til hjartaslags um helgina. Jarðarför leiðtogans verður á miðvikudag milli jóla og nýárs. Mikil sorg ríkir nú í þessu einangraða landi að því er ríkismiðillinn greinir frá og þegar hafa birst myndir af grátandi fólki í höfuðborginni Pyongyang. Kim Jong Il var eini leiðtogi Kommúnistaríkis sem fékk valdastöðuna í arf en hann tók við stjórnartaumunum þegar faðir hans Kim Il Sung lést árið 1994. Sá ber titilinn forseti til eilífðarnóns og því var Kim Jong Il ávallt kallaður leiðtogi landsins en ekki forseti. Nú mætir til sögunnar þriðji ættliðurinn því sonur Kim Jongs IL, Kim Jong UN mun taka við af föður sínum. Hann hefur nú fengið titilinn hinn mikli arftaki í Norður kóreskum miðlum. Lítið var vitað um Kim Jong Il þegar hann tók við á sínum tíma og enn minna er vitað um son hans. Það er ekki einusinni á hreinu hvað hann er gamall en hann mun vera um þrítugt og menntaður í Sviss. Mikil spenna hefur eðlilega myndast á Kóreuskaga í kjölfar fréttanna af láti leiðtogans enda hefur stríðinu á milli Norður og Suður Kóreu aldrei formlega lokið. Forseti Suður Kóreu sagði í morgun að hann hafi rætt við Barack Obama Bandaríkjaforseta og að þeir hafi orðið ásáttir um að fylgjast náið með framvindunni næstu daga.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Innlent Fleiri fréttir „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Sjá meira