Gífurlegt eignatjón eftir ofsaveður í Færeyjum 25. nóvember 2011 06:58
Gífurlegt eignatjón hefur orðið í Færeyjum eftir ofsaveður sem skall á eyjunum í gærkvöldi og herjaði þar fram eftir nóttu. Vindstyrkurinn í þessu veðri fór upp í allt að 51 metra á sekúndu. Til samanburðar má nefna að vindmörkin sem sett eru fyrir fellibyli byrja í 32 metrum á sekúndu þannig að um tíma hefur veðrið verið á borð við annars stigs fellibyl. Í fréttum um veðrið á vefsíðunni portalurin segir að bátar hafi slitnað frá bryggju og rekið upp í fjöru, þök hafi fokið af húsum og bílskúrar fokið í heilu lagi. Þungir fiskkassar liggi eins og hráviði um allt við Tóftir. Þá hafi orðið að flytja alla íbúa af elliheimilinu í Trongisvogi eftir að þakið fauk af heimilinu. Lögreglan í Þórshöfn bannaði öllum íbúum bæjarins að vera á ferli í gærkvöldi sökum þess hve mikið var um fjúkandi þakplötur í bænum. Ekki er vitað um neina skaða á fólki í þessu veðri. Óttast er að olía hafi lekið úr strandferðaskipinu Tróndur sem slitnaði frá bryggju á Skála og rak upp í fjöru. Veðrið hefur verið að ganga niður nú seinnihluta nætur en ljóst er að mikið endurbyggingar og hreinsunarstarf bíður Færeyinga í dag. Stormur þessi stefnir nú á Noreg og hefur hlotið nafnið Berit.
Mest lesið Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut Innlent Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Innlent Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Innlent „Það er öllu stjórnað með ógn þarna“ Innlent Zo-On fær ekki krónu: Kveikt á rafsuðutæki þegar eldurinn kviknaði Innlent Berjast við talsverðan sinueld við Selfoss Innlent Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykjavík Innlent Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Varnarsamningur við ESB settur á oddinn og þjóðaratkvæðagreiðsla brátt fyrir þingið Innlent Fleiri fréttir Óska eftir fundi með Rubio Kaffilaus fundur í gluggalausu herbergi „Ég ætla ekki að segja hættum við kosningarnar“ Nýtti sér leik sinn í Dansar við úlfa við að mynda sértrúarsöfnuð Hafa birt innan við prósent af Epstein-skjölunum Walz hættir við framboð vegna árása Trump-liða Sænskur ráðherra hlutgerður á miðli Musk Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Svissneski skemmtistaðurinn ekki skoðaður í fimm ár Kristrún, Witkoff og Kushner á fundinum í París í dag Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Fyrrverandi fjármálaráðherra Kanada verður ráðgjafi Selenskí Var með fleiri en fimmtíu hunda á heimilinu Segir þörf á samtali um „meintan“ yfirráðarétt Dana „Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Fækkar ráðlögðum bóluefnum „Ég er ekki í pólitík til að gera fólk glatt“ „Einhver verður að gera eitthvað til að stoppa manninn af“ Hæddist að vörnum Dana á Grænlandi: „Þeir bættu við einum hundasleða“ Upphaf langra málaferla Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Fjallaljón banaði konu eftir að ráðist var á mann Maduro verður leiddur fyrir dómara síðdegis Rétta yfir löggu fyrir aðgerðaleysi á meðan börn og kennarar voru myrt Tíu sakfelld fyrir að halda því fram að forsetafrúin sé trans Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Rannsaka klámmyndir spjallmennis Musk af táningum Aðgerðasinnar tóku rafmagnið af Berlín Rúmlega þrjátíu Kúbverjar sagðir hafa fallið í Venesúela Búið að bera kennsl á alla sem létust í brunanum Sjá meira