Erlent

Sprengjuárás í mosku

Múslimar biðja fyrir utan mosku fyrr í dag.
Múslimar biðja fyrir utan mosku fyrr í dag. Mynd/AFP
Að minnsta kosti sex létust í sjálfsmorðssprengjuárás í mosku í Afganistan í morgun. Sprengjan sprakk þegar gestir moskunnar voru á leið út eftir að hafa tekið þátt í bænum en í dag hefst Eid-al adha hátíð múslíma sem markar lok ramöddunnar.

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum særðust að minnsta kosti tólf í sprengingunni en lögreglumaður er meðal þeirra sem féllu í valinn.

Talsmaður innanríkisráðuneytisins segir annan hryðjuverkamann hafa verið handtekinn áður en honum tókst að sprengja sína sprengju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×