Milljónir manna grýta djöfulinn 6. nóvember 2011 11:25 Mynd/AFP
Nú stendur yfir pílagrímsför milljóna múslima, fimm daga ferð þar sem múslimar feta í fótspor Múhameðs spámanns og ganga til Mekku, höfuðborgar Saudi-Arabíu. Í dag er annar dagur pílagrímsfararinnar og tóku milljónir múslima þátt í táknrænni athöfn þar sem djöfullinn sjálfur var grýttur. Með athöfninni minnast múslimar þess þegar Abraham grýtti djöfulinn, sem er sagður hafa birst honum þrisvar sinnum til að freista hans. Athöfnin fer þannig fram að fólksfjöldinn gengur kringum þrjár steinsúlur og kastar steinvölum í átt að þeirri stærstu. Þar sem fjöldi pílagrímanna er gífurlegur er athöfnin ein sú hættulegasta í pílagrímsförinni, þar sem troðningurinn skapar hættu á því að fólk troðist undir. Til dæmis er talið að minnst 360 manns hafi látist í athöfninni árið 2005. Dagurinn í dag markar einnig upphaf hátíðarinnar Eid al-Adha, en með henni minnast múslimar undirgefni Abrahams við guð, þegar hann samþykkti að fórna sínum eigin syni til að hlýðnast boðum hans. Í Rússlandi söfnuðust yfir 80 þúsund manns saman í nístandi frosti á götum Moskvu af þessu tilefni. Fólkið hafði ekki í neinn samastað að leita, enda var aðal moska borgarinnar rifin í september og enn hefur önnur ekki risið í hennar stað. Því safnaðist fólkið saman á götum úti til að biðja.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira