Erlent

Tæplega fjögur þúsund fallnir í Sýrlandi

Mynd/AP
Nú er talið að rúmlega 3500 manns hafi látið lífið í átökum frá því mótmælin í Sýrlandi gegn ríkjandi stjórnvöldum hófust. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástandið í landinu. Fregnir hafa borist af aukinni hörku stjórnarhermanna í borginni Hama og segja vitni að beitt hafi verið sprengjuvörpum og skriðdrekum í nokkrum hverfum borgarinnar.

Hörðustu bardagarnir hafa verið í Hama en uppreisnin í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í sjö mánuði. Í ágúst létust hundruð mótmælenda í borginni þegar stjórnarhermenn reyndu að bæla uppreisnina niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×