Erlent

Réttarhöldum yfir Mubarak frestað

Niðurstaða á að liggja fyrir seint í desember.
Niðurstaða á að liggja fyrir seint í desember. mynd/AFP
Réttarhöldum yfir fyrrverandi forseta Egyptalands, Hosni Mubarak, hefur verið frestað þangað til að niðurstaða liggur fyrir um hvort að nýr dómari muni annast málið.

Það voru lögmenn fórnarlamba byltingarinnar sem kröfðust þess að nýr dómari yrði fenginn.

Khaled Abu Bakr, einn af umboðsmönnum fórnarlambanna, sagði að upphaflega dómarinn hefði ekki leyft skjólstæðingum sínum að fylgjast með réttarhöldunum.

Niðurstaða á að liggja fyrir seint í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×