Erlent

Ahmadinejad boðaður í yfirheyrslur

Þingið mun boða forsetann til yfirheyrslu en slíkt hefur aldrei verið gert áður.
Þingið mun boða forsetann til yfirheyrslu en slíkt hefur aldrei verið gert áður. mynd/AFP
Þing Írans mun boða Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins, í yfirheyrslur vegna meintra svika. 73 af 290 þingmönnum skrifuðu undir beiðni til að yfirheyra forsetann en Ahmadinejad hefur átt í langri orrustu við andstæðinga sína á þinginu.

Ahmadinejad verður fyrsti forseti Írans sem þarf að gangast undir yfirheyrslur af þessum toga. Talið er að málið sé mikið áfall fyrir forsetann og mögulegt er að yfirheyrslurnar eigi eftir að draga dilk á eftir sér, þá sérstaklega varðandi samskipti Ahmadinejad við þingmenn og valdamikla klerka Írans.

Fyrir nokkru var efnahagsráðherra Írans fundinn sekur í einu stærsta fjársvikamáli í sögu Írans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×