Erlent

Líbískur fjársjóður finnst í Egyptalandi

Talið er að peningunum hafi verið rænt þegar barist var um Benghazi.
Talið er að peningunum hafi verið rænt þegar barist var um Benghazi.
Þjóðarráðið í Líbíu greindi frá því í dag að fornir smápeningar sem rænt var úr banka í Benghazi hafi fundist í Egyptalandi.

Ránið átti sér stað þegar byltingarhermenn og stuðningsmenn Muammar Gaddafis tókust á í borginni í maí á þessu ári.

Þegar orrustan stóð sem hæst kom upp eldur í bankanum og nú er talið að eldurinn hafi tengst ráninu en ekki orrustunni.

Smápeningarnir voru hluti af miklu safni fornmuna sem kallað er Fjársjóður Benghazi.

Dr. Saleh Algab, stjórnarformaður safnsins í Trípólí, sagði að í fjársjóðinum séu munir frá forn-Grikkjum og Rómverjum, ásamt fornmunum frá upphafsárum múhameðstrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×