Erlent

Elísabet Bretadrottning heimsækir Ástralíu

Elísabet II Bretlandsdrotting er nú stödd í 10 daga opinberri heimsókn til Ástralíu en hún kom til landsins í gærdag. Talið er að þetta sé síðasta opinbera heimsókn drottningarinnar til Ástralíu vegna þess hve öldruð Elísabet er orðin en hún er 85 ára gömul.

Eiginmaður hennar, hertoginn af Edinborg er með henni í förinni. Þeim hjónum hefur verið vel og hlýlega tekið að sögn BBC enda er drottningin vel liðin í Ástralíu. Hún er opinber þjóðhöfðingi landsins og í nýlegri skoðanakönnun kom í ljós að 55% Ástrala vilja að svo verði áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×