Erlent

Ostur sú vara sem mest er stolið úr verslunum

Ostur er sú vara sem mest er stolið úr verslunum í Evrópu. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem unnin var á vegum Center for Retail Research.

Í ljós kom að 4% af öllum osti í hillum evrópskra stórmarkaða lendir í vösum búðaþjófa. Næst á eftir ostinum koma svo lúxusálegg eins og hráskinka og roastbeef og í þriðja sæti eru skeldýr og lúxusfiskur.

Í Bandaríkjunum eru þjófarnir ekki eins hrifnir af ostinum. Þar er mestu stolið af hráu kjöti og sælgæti en um 3,6% af þessum vörum í stórmörkuðum vestan hafs hverfa ofan í vasa búðarþjófa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×