Erlent

Allir hermenn farnir frá Írak fyrir árslok

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama tilkynnti í dag að allir hermenn yrðu farnir frá Írak í árslok.
Barack Obama tilkynnti í dag að allir hermenn yrðu farnir frá Írak í árslok.
Allir bandarískir hermenn í Írak verða kvaddir heim fyrir lok ársins. Þetta tilkynnti Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í dag. Næstum níu ár eru liðin frá því að George W. Bush, þáverandi forseti, skipulagði innrás inn í landið.

Nú eru um 39 þúsund hermenn í landinu en þeir voru um 165 þúsund árið 2008. Samkvæmt tölum frá varnarmálaráðuneytinu í Bandaríkjunum, sem BBC fréttastofan greinir frá, hafa 4,408 hermenn fallið frá því að innrásin var gerð í mars 2003.

Í ávarpi sem Obama hélt eftir að hann átti símafund með Nouri Maliki, forsætisráðherra Bandaríkjanna, hét hann Íröskum stjórnvöldum aðstoð við uppbyggingu í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×