Heiðar tryggði QPR sigur á Chelsea - öll úrslitin í enska í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2011 14:30 Heiðar Helguson. Mynd/AP
Heiðar Helguson tryggði nýliðum Queens Park Rangers óvæntan 1-0 sigur á Chelsea í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar skoraði eina mark leiksins úr víti sem hann fékk sjálfur á 10. mínútu en annars var þetta ótrúlegur knattspyrnuleikur þar sem Chelsea-liðið faldi það mjög vel að vera níu á móti ellefu í 49 mínútur. Chelsea mistókst þar með að komast upp fyrir Manchester United og í annað sætið. Chelsea er nú sex stigum á eftir toppliði Manchester City og einu stigi á eftir United. Queens Park Rangers komst hinsvegar upp í 10. sæti deildarinnar með þessum sigri. Chelsea lék tveimur mönnum færri allan seinni hálfleikinn en var engu að síður nokkrum sinnum mjög nálægt því að jafna leikinn. Bestu færin fengu þeir Frank Lampard, David Luiz og Nicolas Anelka. Heiðar fiskaði víti á Chelsea-manninn David Luiz á 10. mínútu eftir að þeir höfðu verið að kljást um boltann og Heiðar skoraði síðan sjálfur úr vítinu. Bosingwa var síðan rekinn útaf á 33. mínútu eftir að hann felldi Shaun Wright-Phillips sem var að sleppa í gegn og aðeins átta mínútum síðar voru Chelsea-menn orðnir tveimur mönnum færri eftri að Didier Drogba fékk beint rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingu. Chelsea byrjaði seinni hálfleikinn á stórsókn þrátt fyrir að vera tveimur mönnum færri. Bæði lið fengu síðan fín færi það sem eftir lifði leiksins og þar á meðal Heiðar Helguson sem hefði nánast getað gulltryggt sigur QPR á 77. mínútu. QPR hélt út og fagnaði óvæntum sigri.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Arsenal - Stoke 3-1 1-0 Gervinho (27.), 1-1 Peter Crouch (34.), 2-1 Robin van Persie (73.), 3-1 Robin van Persie (82.)Fulham - Everton 1-3 0-1 Royston Drenthe (3.), 1-1 Bryan Ruiz (67.), 1-2 Louis Saha (90.+1), 1-3 Jack Rodwell (90.+3)Manchester United - Manchester City 1-6 0-1 Mario Balotelli (22.), 0-2 Mario Balotelli (60.), 0-3 Sergio Agüero (69.), 1-3 Darren Fletcher (80.), 1-4 Edin Dzeko (89.), 1-5 David Silva (90.+1), 1-6 Edin Dzeko (90.+3)Blackburn - Tottenham 1-2 0-1 Rafael van der Vaart (15.), 1-1 Mauro Formica (xx.), 1-2 Raphael van der Vaart (53.)Queens Park Rangers - Chelsea 1-0 1-0 Heiðar Helguson, víti (10.)Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira